Yet another manic MondayTyrfingur Tyrfingsson

  

Tók ákvörðun um það á sunnudagsmorgninum um áttaleytið að fara ofan í Tjörnina, synda að húsinu sem er staðsett í hennig banka þar og spyrja hvort ég gæti fengið lánaðan sykur.  Það var enginn heima.  Já, ekki er maður smart.

 

Síðan fór ég í morgun á Klepp í sjálfsbjargarnámskeið.  Mjög ffyndið.  Núna get ég eiginlega yfirbugað alla með einu snöggu taki.  Jájá. 

 

Lúcas litli er farinn að éta ógeðslega mikið og er eiginlega kominn í frekar djarfa yfirþyngd.  Ég held að hann sé svona emotional eater söökum drykkjumynsturs í fjölskyldunni.  Já. 

 

Svo fer nú að syttast í uppistandiðhjá honum Guðmundi Jör.  Hann hefur bara aldrei tíma til þess að sinna mér og mínum málum því hann er búinn að finna enn aðra gimbruna sem hann hamast á daginn inn og daginn út svo eftir sit ég einn, inni í litlu húsi og kann ekki að sauma.

MetTyrfingur Tyrfingsson



Jæja, þá var enn eitt Íslandsmetið í ölvun slegið.   Þakka veittan stuðning og sýndan áhuga.


Pjás:  Viltu dansa?

Tyrf (á skallanum): Ha?

Pjás:  Já, viltu dansa, við mig?

Tyrf (á skallanum):  Hvað meinaru við þig?

Pjás:  Bara, þú veist, ég og þú og smá dans...

Tyrf:  Oj, nei.


Smart?




...Tyrfingur Tyrfingsson



Vinna á geðdeild íslands frá 8-16. Vinna á Humarhúsi Íslands 19-24.  Þreytandi til lengdar. Reyndar risagaman í geðvinnunni.  Búinn að fá fjögur bónorð, er víst skyldur mörgum sem ég kannast ekkert við og sonur sumra.  Jájá, alltaf að læra eitthvað nýtt.

Skulu allir þeir sem syndugir eru, kasta í þig sem flestum steinunum.Tyrfingur Tyrfingsson


Og nýr dagur varð til.

 

Það sem er svo yndislegt við maí eru hversu margir viðbótarlaugardagar eru í boðinu;  1. maí, Hvítasunna og allt þetta stuð.  Ekki er það sama uppi á pallborðinu í júnímánuði og hef ég því ákveðið að stofna Fyrrum-tengdamæðradaginn sem skal haldinn 13. júlí ár hvert með pompi og prakt.  Ástæðan er sú að nokkrar vinkonur mínar hafa kvartað við mig ítrekað yfir bæði núverandi og fyrrverandi tengdamæðrum sínum og því brjálast ég nú.

Á þessum tiltekna degi gefst fyrrum tengdasonum og –dætrum færi á að koma sér niður á mæðrunum.  Nú er í vinnslu að setja kort með eftirfarandi áletrunum í prentun sem allra fyrst:  

Gleðilega hátíð, manipúlatíva kuntan þín.

Með bestu kveðjum til Ödipusar.

Maðurinn þinn er að ríða kellingu í Hlíðunum.  Gleðilega hátíð.

Gleðilega hátíð.  Já, og til hamingju með leghálskrabbameinið sem var að finnast í þér.  Þau er erfitt að lækna

(Fyrir trúaða)
Á þessum drottins degi óska ég þér og fjölskyldu þinni ömurlegs sumars og enn verr komandi vetrar.

Megi góður guð vera sem lengst frá þér nú á þínum síðustu og verstu.

Skulu allir þeir sem syndugir eru, kasta í þig sem flestum steinunum.

____

Ef einhver gæti gefið sig fram og hannað kortin fyrir þetta yrði ég ævinlega þakklátur.

  

Talandi um að go proTyrfingur Tyrfingsson



Ég hef oft furðað mig á tilhneigingu margra til þess að go professionally homosexual.  Núna ákvað ein pjásan hreinlega að brjálast.  Þetta er samt pínu fyndið:

http://www.visir.is/article/20080522/LIFID01/49820472

Baby boy, you will never work in this townTyrfingur Tyrfingsson



Nýlentur og kominn heim frá Köben, frekar sigraður á líkama en sáttur í sál.  Það mun stórsjá á ársuppgjöri Carlsberg framleiðandans eftir þennan risaskalla.  Persónulega man ég ekki eftir flugferðinni út þar sem ég á víst að hafa verið með uppsteyt og erfiðileika allan tímann þangað til ég drapst á brjóstunum á Grúnu.

Mikið af trúnað átti sér stað þar sem ýmislegt er bannað börnum.  Þær sögur er hægt að nálgast á Kaffibar eftir fjögur í myrka horninu þar sem má reykja á tyllidögum.

Eitt sem stóð þó svakalega upp úr var saga, sönn saga, sem ég heyrði frá fyrstu hendi.  Hér kemur hún.  David nokkur er ungur og gríðarlega myndarlegur maður (pjás) og góðvinur Gríðar Ásgeirsdóttur.  Hann á sé skuggalega fortíð þar sem hann var rentboy sautján ára gamall en hætti því um tvítugt þegar hann komst inn í mjög virtan leiklistarháskóla í London þar sem hann og býr og starfar (ekki samt sem mella lengur. vúhú fyrir hann).  Nema hvað viti menn.  Þessum unga manni var boðið að fara til L.A. af umboðsmanni yfir helgi til þess að fara á fundi með framleiðendum og mix and mingle, fá sér búbblísjúss og þar fram eftir götunum.  Eitt kvöldið er honum boðið í VIP partý dauðans þar sem fullt af frægu fólki er saman komið.  Honum er tilkynnt fyrir boðið að hófið sé þess eðlis að þar sem þar gerist fréttist ekki... nokkurs konar trúnaðarboð.  Og nema hvað.  Hann stendur í sakleysi sínu ekkert nema myndarlegheitin uppmálið með sjúss í hægri að gera góða hluti erlendis.  Þá kemur upp að honum lítill ákafur krullhærður maður:

Lítill ákafur krullhærður maður:  Hello, sir, George wants to talk to you
David:  (frekar brenndur eftir allt hórerí fortíðarinnar)  No, no, let's not.
Lítill ákafur krullhærður maður:  No, you don't understand what it is I'm getting at.  George really wants to talks to you (wink-wink).
David:  No, I'd rather not.
Lítill ákafur krullhærður maður:  (Orðinn stressaður og gríðar ákafur)  George needs to talk to you.  He likes you.  He likes you alot.
David:  (Pirruð fyrrum hóra)  George, George, George fucking who?
Lítill ákafur krullhærður maður:  George Cloone.
Þarna springur David úr hlátri og öllum salnum verður litið á hann.  Mr. George Cloone heyrir þetta og stendur upp og æðir út í fússi.  En fyrst kemur hann aftan að David og hvíslar:

Baby boy, you will never work in this town.


Þar hafiði það allar einstæður mæður heims, maður drauma ykkar er í hinu herberginu í djörfum með yngsti syni ykkar.  Hahahaha.



P.s.  Gríður, Steini og Rakel... þið eruð ótrúlegt fólk.  Ekki skrítið að þið nennið ekki að vera á Íslandi. 

LúxusTyrfingur Tyrfingsson



Þá er maður bara á leiðinni til Kaupmannahafnar í lúxus með Grún og vinkonum hennar þar sem ég ætla að hitta þau Gríði og hann Steina minn.  Þetta verður nú eitthvert subbið.  Sem er gott.

 

Þetta er mjög hræðilegtTyrfingur Tyrfingsson



Þetta er með því hræðilegra sem ég hef séð.  Spurning um að láta sjóðinn splæsa í greiningu á þessari:

http://www.visir.is/article/20080507/LIFID01/922423853

Hvaðereiginlegamálið?Tyrfingur Tyrfingsson



Söfnunin gengur framar vonum og hefur fangað athygli allra helstu fjölmiðla.  Nú fer hver að verða síðastur að leggja inn og sá sem mun eiga hæsta innlagða fjárhæð í lok mánaðar hlýtur vegleg verðlaun (innsk. ritstj. fjármögnuð af sjóðnum?).

Þessi litla hugmynd um þennan varasjóð ef eitthvað kæmi upp á hefur aldeilis undið upp á sig og nú er svo komið að bloggarinn, snillingurinn og verðandi uppistandarinn Guðmundur Jörundsson mun halda sitt jómfrúauppistand heima hjá mömmu sinni á Barónstíg föstudaginn 23. maí.  Hvaðereiginlegamálið? er show sem hefur verið beðið með gríðarlegri eftirvæntingu í mörg ár þar sem Guðmundur flettir upp kómískum hliðum firringar vélvæðingarinnar og narsisima á nýstárlegan hátt.  Einstakt tækifæri fyrir alla unnendur gríns. 

Ágóði sýningarinnar rennur óskiptur í Því glæp mun bera að garði, styrktarsjóð minn.

Aðeins níu miðar eru eftir og geta áhugasamir sent póst á netfangið  hvadereiginlegamalid@gmail.com og óskað eftir miða. 

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest

Krakkarnir

ATH. Setið er í stafrófsröð og bannað er að koma með eigið sælgæti og gos (nema sérstaklega sé beðið um).

kt. 070587-2389
reikningsnr. 515-14-610228


Því glæp mun bera að garðiTyrfingur Tyrfingsson



Í anda Hannesar Hólmsteins hafa vinir mínir ákveðið að stofna styrktarsjóð Tyrfings Tyrfingssonar sem ber heitið Því glæp mun bera að garði.  Sjóðurinn er hugsaður þannig að þar sem ég er frekar veikur fyrir víni mun ég að öllum líkindum einn daginn fremja glæp í einhverju ölæðinu, þannig að þegar að á hólminn er komið mun ég eiga dágóðan sjóð til þess að borga bæði lögfræðikostnað og skaðabætur. 

Stefnan er sett á 30 milljónir því fyrst Hannes þarf að borga 23 fyrir að stela nokkrum one linerum af Laxness, hvað þarf ég að borga ef ég í óðagoti sneika krakka úr vöggu að morgni til í Þingholtunum?

Þess ber að geta að ég hafði ekki hugmynd um stofnun þessa sjóðs og er honum gjörsamlega óviðkominn, enda staddur á Ölstofunni á meðan stofnfundi stóð. 

Með fyrirfram þökkum um dágóðar upphæðir

Tyrfingur Tyrfingsson

kt. 070587-2389
reikningsnr. 515-14-610228

Umfjöllun fjölmiðla:

http://www.monitor.is/?i=20&expand=3-20&b=1,2397,news_bImageLinks.html

Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Tyrfingur Tyrfingsson
  • Staður: 101
  • Atvinna: Gengilbeina í hlutastarfi
  • Hjúskaparstaða: Einhleypur
  • Annað: Því miður

Leit