Þú færð ekkert kaffiTyrfingur Tyrfingsson
Núna er ég á skallanum nýkominn af pjásubar Íslands, í þann mund að fara að taka á ákvörðun um hvort ég eigi að fara í eftirpartýin sem mér var boðið í eða ekki. Hugsa ég fari. Já, jáááááá, ég fer. Kýlum á það. Ekkert bull.
Kæra vinkona synd... þú færð brauð... og smjör...
en... smjörið verður úr píkunni á þér...
hóra
MiðnesTyrfingur Tyrfingsson
Miðnes er alveg að drepa mig um þessar mundir. Miðnes er þrefaldur gin með dass af tóniki. Ógeð kúl og rokk drykkur en vá... ég er bara kominn undir sæng fyrir miðnætti og vakna á morgnana brennivínsrauður og þrútinn útlítandi eins og Bette Midler eftir djarfan túr. Ekki gott. Ætla samt að fá mér smá Miðnes í kvöld. Einn. Kannski tvo. Skoðum það.
Í dag er ég búinn að þrífa allar rúður Humarhúss í pólverjaúlpunni minni (grá og síð úlpa sem ég kannski fann úti). Ég er búinn að fara út að hlaupa OG búinn að fara á Gróttu. All in day. All in day.
Kelað í gegnum netið.Tyrfingur Tyrfingsson
Ég er, sem frægt skal verða, mjög andvígur myspace-farganinu sem hefur tröllriðið öllu nú í talsverðan tíma. Þessi hugmynd um það að geta einfaldlega flett einhverri ákveðinni manneskju upp og skoðað myndir af henni, vitað hvað hún hlustar á og horfir, hvort hún sjúgi typpi eða lepji á skonsum, hvort hún sé feit eða mjó eða eigi shit loads af börnum, hvað hún fær í árstekjur, hvort hún sé fráskilin, í hvernig stuði hún er, hvort hún reyki, hvort hún drekki og hvernig henni líður, þykir mér sjúkleg og pervertísk pæling. Þetta minnir mig á það þegar maður var yngri að skoða skjöl um stóðhesta þar sem hægt var að lesa allt um háls, byggingu, lendar, uppruna, hæð, fótaburð, þyngd, ætt, hvort sæðið væri líklegt til góðra verka og ítarlegar upplýsingar um fegurð í reið.
Myspace er, líkt og ættbók stóðhesta á Íslandi, orðið að stóra dómi um limaburði, útlit, velgengi, vinsældir og persónuleika fólks í dag. En hvað er að því? Þetta er auðvitað hentugt, þetta konsept um að katagólæsa fólk; að þú pantir og sért pantaður. En spurningin hlýtur samt að vera sú að eins hentugt og það er að panta af bæklingi hvort það orki ekki tvímælis að leita sér að manneskju af katalóg þar sem þú ert sjálfur ein blaðsíðan af mörgum og segir: ,,Single, athletic and here for dating“.
En hvað fyndist fólki bara svona almennt um það ef líf þeirra væri hluti af útgefnum bæklingi? Þá væri bæði hægt að skoða húsgögn frá Ikea úr einum ruslpóstinum og manneskju úr hinum. Myspace er ekkert annað en bæklingur á netinu með manneskjur sem söluvörur.
Kannski er ég bara svona mikil afturhaldspíka en mér líst ekkert á þetta. Mig grunar nefnilega að það að vera svona á útopnu á netinu komi niður á nándinni í raunveruleikanum. Fólk sendir vinum sínum hjörtu á comment-síðuna á afmælisdaginn þeirra og þarf því ekkert að kyssa þá til hamingju þegar hist er því ,,það var búið að tækla þetta á myspace“... engar vandræðalegar þagnir ekkert slysalegt káf. Þetta er nefnilega orðið þannig að fólk á auðveldar með að tjá sig með brosköllum og upphrópunarmerkjum á bak við tölvuskjáinn og fulla skál af nammi heldur en í raunveruleikanum.
Þannig að. Ég bíð, og bíð bara eftir því að microsoft splæsi tittlingin og lufsu á tölvurnar sínar því þá getur fólk bara verið heima, á útopnu og kelað í gegnum netið.
Goði - ég við þig loði!Tyrfingur Tyrfingsson
Langar til þess að bjóða fyrrum kærri vinkonu minni Kristínu Gunnarsdóttur að skíta í píkuna á sér fast og mikið. Ekki nóg með það að hafa niðurlægt mig í matarboði sínu á föstudaginn alltof langa, heldur skrifar hún líka færslu (já, hún er fellow-bloggari) þar sem hún dregur ýmislegt í efa og lítillækkar það sem ég hafði um þessa hræðilegu veislu að segja. Þetta skrifar hún meðal annars:
- Hann drakk alls ekki gin í Spur eins og við hin, heldur fékk hann djörfu útgáfuna af Gammel í trönuberjasafa.
- “Love and Marriage” atriðið náði aldrei að byrja, þrátt fyrir að allt væri klárt, þar sem Tybbi hélt langa tölu um “lífsins lystisemdir” og þátttöku hans í prufum fyrir Goða-auglýsingarnar frá 95, þar sem hann náði því miður ekki að land the job.
(http://ladyinblack.bloggar.is)
Þetta með misskilning minn með hvort við drukkum gin í spur eða gammel í trönusafa er atriði sem ótrúlega litlu máli skiptir og flokkast því sem smáatriði (tenging: smáatriði-smáborgari). Ræða mín um Lífsins lystisemdir var ekki löng og að hluta til í bundnu máli svo hún má prísa sig sæla yfir að hafa orðið þess heiður aðnjótandi að fá að hlusta á þá tölu. Þá kemur að þátttöku minni í prufum fyrir Goða-auglýsingarnar. Í fyrsta lagi þá voru þessar prufur haldnar 1996 en ekki 1995 í Húsi Háðs og Spotts á Mýrarvegi í eystri Grindavík. Það voru mjög margir sem tóku þátt í þessum prufum og ástæðan fyrir því að ég að lokum fékk ekki giggið var einfaldlega sú að ég sem barnastjarna hafði ekki sömu tengslanet og hin börnin (ég beisiklí neitaði að sjúga typpið á leikstjóranum annað en hinar hórurnar). Það fór ekkert á milli mála að ég fór lang best með línurnar: ,,Goði – ég við þig loði!“ og prakkaraglottið á eftir var algjört meistaraverk. Þetta sama glott varð þess valdandi síðar á ævi minni að ég fékk hlutverkið Prakkari(nr. 2) í Litlu stúlkunni með eldspýturnar.
Síðan skaltu vita það Kristín Gunnarsdóttir að þú og hann Sigurður (g)Unnar megið þakka guði fyrir það að ég hafi komið í veg fyrir flutning ykkar á Love and Marriage atriðinu ykkar því það er bara hreinlega mjög lélegt stöff með stirðri kóríógraphíu og flötum söng.
Og hafðu það svo.
... and dad being freewillingly molested in prison...Tyrfingur Tyrfingsson
Núna á laugardaginn verður örleikritið Eins og einn þig eftir mig sýnt á feministakvöldi dauðans einhvers staðar hérna í borginni. Er ekki alveg með þetta allt á hreinu en alla veganna... já, á laugardagskvöldið. Meira síðar.
Síðan er nú gaman að segja frá því að síðastliðnar vikur hef ég verið að fara í gegnum alls konar skjöl og pappíra frá því fyrr í post-millenium og langar endilega til þess að mæla með tveimur síðum sem ég ásamt stórvini mínum Sigurði (g)Unnari héldum úti hér fyrir nokkru. Læt tilvitnanir fylgja.
www.myspace.com/all_about_Andrew
,,Heroes: ... Elenor Roosevelt for her bravery. And last but not least, my very great friend Kim Roselin, who always stands by me, when she has the time.“,, I was just thinking about Slavek and mom, and dad being freewillingly molested in prison...“
,,My parole officer is sending me with Andrew fucking Saylor and his extremely manly looking finnish girlfriend Nina, to a pregnancy-convention this weekend (and as you know I hate fat people no matter their excuses). I am gonna spend my weekend watching giant pussies becoming bigger than fucking Jesus as they vomit red little screaming maggots soon to be date-raping truck drivers into this shit hole of a world.“
Gaman.
Úri hentTyrfingur Tyrfingsson
Bara svo það sé gjörsamlega á hreinu þá má eigandi quartz-hagkaups-pleðurólar-úrsins sem er hérna heima hjá mér, vita það og fagna því að ég hef fundið það og ekki bara fundið heldur hefi ég gott betur en það séð það, fundið og loks hent því í ruslið þar sem þessu tiltekna úri er velkomið að halda partý með skinkubréfum, bjórdósum og öðrum tískuslysum sem hafa gleymst hérna heima hjá mér.
BéarnaiseTyrfingur Tyrfingsson
Enn og aftur er það hið veraldlega sem hefur komið upp á milli mín og kærrar fyrrum vinkonu Kristínar (Stínunnar) Gunnarsdóttur. Kristín hefur sér það til frægðar unnið að vera með risastór brjóst sem hún hikar ekki við að flexa út um allt og yfir alla, öllum til mikillar mæðu. Á föstudaginn bauð þessi hóra mér í matarboð þar sem ég mátti ekki koma með son minn með mér (fyrsti mínus). Í fordrykk bauð hún upp á gin í Spur og betrekkaði borðin með litlum (mækróhituðum) partýpulsum sem maður gat dýpt í alls konar vont sem hún hafði búið til. Eftir að hafa hlustað á hana og kærastann hennar Sigurð Gunnar syngja og dansa í gegnum lagið Love and Marriage var okkur loks boðið til sætis. Fram kom hún með Wellington, beikonkartöflur og fleira frekar beisik eitísstöff og ég var ánægður... hættur að hugsa og reikna út hvenær kurteist væri fyrir mig að yfirgefa. En svo gengur helvítis gimbran inn með sósu í fati og ekki bara hvaða sósu sem er heldur Béarnaise. Nú, Chef Collinet er talinn hafa fundið sósuna upp í kringum árið 1836 og var hún fyrst sörveruð á Le Pavillion Henri IV sama ár. Béarnaise er beisiklí egg og smjör grautað saman og spækað með alls konar stöffi. Kristín (http://ladyinblack.bloggar.is) veit vel hvað mér finnst um Béarnaise, og hvað sú sósa hefur gert mér og minni fjölskyldu. Langaamma mín var stödd í giftingu í Svíþjóð ´88 og svelgdist á Béarnaise, missti andann og lést í miðri veislunni. Faðir minn er með æðatappa og erfiða gyllinæð sökum mikillar neyslu af þessari sömu sósu. Svona gæti ég talið endalaust. Þannig að það gefur augaleið að þegar þessi tussa labbaði inn í stofuna ekkert nema brjóstin og Béarnaisinn þakkaði ég fyrir söng og dans og strunsaði út með ginflöskuna og spurið.
Kristín, we are not on speaking terms.
IKEA -retroTyrfingur Tyrfingsson
Ef einhver sá fullan homma um tvítugt úti að skokka kl. 6 í morgun með smáhund í eftirdragi og sólgleraugu þá þekki ég hann...
Kom heim í nótt eftir hlaupin (sem gerðu mér helvíti gott) og í tilefni hruns krónunnar ákvað ég að sjóða máltíð handa mér og lufsunni í stað þess að panta hana. Sú máltíð samanstóð af barilla-pasta-skrúfum, dós af Heinz sem ég opnaði að hluta til með tönnunum, Libby‘s inc. og graflaxasósu frá Eðalfiski. Út á þetta bætti ég við dass af gömlum lauk og spækaði svo herlegheitin með flötum bjór. Flott skyldi það vera.
Eyddi nóttinni á 11 (rock bar) sem er svo miklu flottari en Kaffibarinn sem lítur út eftir breytingar eins og sýnisherbergi í IKEA, við hliðina á dýradeildinni, sem heitir IKEA-RETRO. Ég meina þetta. Á 11 (rock bar) er gaman að vera, þar er gott að dansa... gamlir subbar að æla í glasið sitt og drekka það aftur, fullar einstæðar mæður í útilegusleik við dyraverðina og snoðaðir Pólverjar dauðir á dansgólfinu. Já, ég held ég verði bara þar í framtíðinni því þarna er syndin alltaf til í að bjóða manni í kaffi. Sem er gott.
Um taumhald á skepnum, III bindi.Tyrfingur Tyrfingsson
Ég tók Geir Ólafs á þetta í gær. Fyrir allan peninginn. Sem er gott.
